Markaðslausnir
og grafísk hönnun
fyrir þitt fyrirtæki

ÞJÓNUSTA Í BOÐI >

MARKAÐSPAKKAR
FYRIR FYRIRTÆKI

PAKKI 1

Grunnpakki

„Sýnileiki á samfélagsmiðlum“

Fyrir lítil fyrirtæki sem vilja hefja stafræna vegferð

Innifalið:

  • Mánaðarleg birtingaáætlun fyrir samfélagsmiðla (Facebook & Instagram)
  • 4-6 hönnuð innlegg/mánuði
  • Grunn hönnun á myndefni
  • Ráðgjöf um efnisgerð

Verð: frá 49.900 kr/mánuði

PAKKI 2

Vöxtur

„Að ná til fleiri“

Fyrir fyrirtæki sem vilja sjá meiri umferð, fleiri viðskiptavini og faglegri ímynd.

Innifalið:

  • Birtingaáætlun og efnissköpun (10+ innlegg/mánuði)
  • Kostaðar auglýsingar á Facebook og Instagram
  • Uppsetning og stýring á auglýsingaherferðum
  • Mælingar og skýrsla mánaðarlega
  • Hönnun á auglýsingum og myndefni
  • Lógó-endurhönnun ef óskað er

Verð: frá 89.900 kr/mánuði + auglýsingakostnaður

PAKKI 3

All in

„Heildarlausn fyrir árangur“

Fyrir fyrirtæki sem vilja alvöru markaðsskrifstofu án þess að ráða starfsmann.

Innifalið:

  • Allt sem er í pakka 1 & 2 +
  • Google Display Ads auglýsingar (uppsetning og stýring)
  • Prentauglýsingar: hönnun & birtingarráðgjöf
  • Mörkun fyrirtækis (lógó, litapalletta, stílbók)
  • Auglýsingaáætlanir & pöntun auglýsinga í miðlum
  • Vikuleg samskipti og áætlanagerð

Verð: frá 149.900 kr/mánuði + auglýsingakostnaður

Sérlausnir

Ég býð einnig upp á sérverkefni og eitt og eitt verk, t.d.:

  • Lógóhönnun: frá 39.900 kr
  • Einföld birtingaáætlun: 24.900 kr
  • Hönnun á prent- eða netauglýsingu: frá 14.900 kr
  • Ráðgjöf í 1 klst. fundi: 9.900 kr

SAGA MÍN

Ég heiti Aldís Valdimarsdóttir og hef starfað sem grafískur hönnuður frá árinu 2009. Á þeim tíma hef ég unnið með fjölmörgum fyrirtækjum að skapandi lausnum sem auka sýnileika, styrkja ímynd og skila árangri. Verkefnin hafa verið fjölbreytt – allt frá lógóhönnun og markaðsefni til heildstæðrar stefnumótunar á samfélagsmiðlum og í auglýsingum.

Ég er með viðskiptafræðimenntun með áherslu á markaðsmál og samfélagsmiðla, og stunda nú meistaranám í markaðsfræði. Þessi samblanda af sköpunargleði og stefnumiðaðri hugsun gerir mér kleift að bjóða upp á markvissar lausnir sem byggja á faglegri nálgun og reynslu.

Ég hjálpa fyrirtækinu þínu að sjást – og selja. Hvort sem þú ert að stíga þín fyrstu skref eða vilt styrkja stöðu þína á markaði, þá móta ég lausnir sem henta þínum markmiðum og gildum. Ég sérhæfi mig í stafrænum auglýsingum, samfélagsmiðlamarkaðssetningu, hönnun lógóa og vörumerkja, auk prentmiðlunar og ímyndarsköpunar.

HAFÐU SAMBAND

HAFÐU SAMBAND

Sími og Tölvupóstur

868 6027aldisvaldimars@gmail.com